embætti hagsmunafulltrúa aldraðra.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Aðeins til að rifja upp þetta ágæta mál þá var samþykkt hér þingsályktunartillaga, líkt og hv. þingmaður kom inn á áðan, og sá sem hér stendur skipaði starfshóp til að vinna að þessu máli. Í þeim starfshópi var fulltrúi Alzheimersamtakanna, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Landssambands eldri borgara, heilbrigðisráðuneytisins og félagsmálaráðuneytisins. Niðurstaða þess hóps var sú að það væri skynsamlegra, eins og málin standa núna, að efla ráðgjöf til eldra fólks og upplýsingagjöf, m.a. vegna þess að til staðar eru eftirlitsstofnanir eins og Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, sem var sett á fót um áramótin 2021/2022, og embætti landlæknis sem væru að sinna ákveðnum hluta þeirra kvartana sem geta komið upp þegar um er að ræða þjónustu við eldra fólk. Mat hópsins var að það væri skynsamlegra að auka upplýsingagjöfina, m.a. til alzheimersjúklinga og aðstandenda þeirra. Það er aðgerð um það í þeirri aðgerðaáætlun sem hv. þingmaður nefndi hér áðan og á sama hátt upplýsingagjöf sem er líka í þeirri aðgerðaáætlun. Á sama tíma myndi gögnum vera safnað. Þetta yrði tveggja til þriggja ára tilraunaverkefni, gögnum yrði safnað um hvar skórinn kreppir þegar kemur að hagsmunum eldra fólks og á grundvelli þess yrði litið aftur á þessa þingsályktunartillögu með það að leiðarljósi hvort þörf sé á að koma á sérstöku embætti hagsmunafulltrúa eldra fólks. Samkvæmt því sem starfshópurinn leggur til er ákvörðun um akkúrat það frestað á meðan við öflum gagna og meðan við förum í verkefni sem eiga að tryggja betri upplýsingar og meiri ráðgjöf til eldra fólks.