Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 105. fundur,  10. maí 2023.

embætti hagsmunafulltrúa aldraðra.

[15:31]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin en ég ætla ekki að trúa því að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra ætli að gera 56 þingmenn að ómerkingum. Það var samþykkt hér í þinginu fyrir tæpum tveimur árum, af öllum viðstöddum þingmönnum, 56 að tölu, að það skyldi stofna þetta embætti hagsmunafulltrúa eldra fólks; fólksins sem kann ekki endilega á .is kerfið eða internetið eða nútímatækni. Við erum að tala um fólk sem fæddist jafnvel fyrir daga útvarpsins og sjónvarpsins og er ekki tæknivætt og verður ekki þjónað með þeim hætti sem víðast hvar er verið að bjóða upp á í bankaþjónustu og öðru. Ég neita að trúa því að við ætlum að gera 56 þingmenn, þingheim, að ómerkingum ákvarðana sinna með því að láta einhvern starfshóp breyta áherslunum og skoða eftir fjögur til fimm ár hvað gera eigi í máli sem búið (Forseti hringir.) er að ákveða að gera hér. Ég vona því að hér verði búið til svigrúm til að standa við ákvörðun þingsins frá 13. júní 2021. Annað væri hneisa.