Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 105. fundur,  10. maí 2023.

embætti hagsmunafulltrúa aldraðra.

[15:33]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ef við ætlum okkur að hætta að hlusta á þær ráðleggingar sem við fáum frá sérfræðingum, ef við ætlum að hætta að hlusta á það sem eru skynsamlegar tillögur til þess að meta eitthvað sem búið er að leggja til, og vissulega samþykkja sem þingsályktunartillögu frá Alþingi, þá held ég að það sé ekki endilega neikvætt heldur er það jákvætt. Viljum við ekki byggja undir þær ákvarðanir sem hér eru teknar með sem faglegustum hætti? Það sem Flokkur fólksins fer hér fram með og ruglar síðan saman við aðgerðaáætlun sem hér er til afgreiðslu síðar í dag er ekkert annað en stormur í vatnsglasi vegna þess að þeim finnst sennilega þessi aðgerðaáætlun bara allt of góð og allt of gott að hún komi frá hæstv. ríkisstjórn. (JFM: Býður upp á humarsúpu en skenkir okkur naglasúpu.)