Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 105. fundur,  10. maí 2023.

Traust og trúverðugleiki íslenska ríkisins á fjármálamörkuðum.

[15:34]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. „Gæti sparað 150 milljarða“, sagði í fyrirsögn Moggans í fyrstu frétt af hugmyndum fjármálaráðherra. Ég játa að forvitni mín kviknaði enda hefur verið kallað eftir því að fjármálaráðherra sýni aðhald, en jafnan án árangurs. Fréttin fjallar síðan reyndar um gjaldþrot ÍL-sjóðs eftir einhver 12 ár. Ég klóraði mér í hausnum: Hvernig gat gjaldþrot skilað sparnaði upp á 150 milljarða? Stutta svarið er að auðvitað er enginn sparnaður í kortunum. Hugmynd fjármálaráðherra var sú að spara ríkissjóði þessa milljarða með því að standa ekki við skuldbindingar sínar heldur láta lífeyrissjóði taka á sig fjártjónið. Fjármálaráðherra boðaði samkomulag en fylgdi þeim orðum eftir með hótun: Náist ekki samkomulag eins og fjármálaráðherra vill verður sjóðnum slitið með lögum. Síðan þá hafa viðsemjendur fjármálaráðherra, lífeyrissjóðirnir, auðvitað komist að þeirri niðurstöðu að þeir geti ekki gert almenningi það að semja þannig að skuldbindingar og samningar standi ekki, að þeir hafi ekki heimild til að samþykkja það að líftími skuldabréfa standi ekki. Og þá er lagasetning nú boðuð til að knýja fram vilja ráðherrans. En hver verða áhrifin á lífeyrisþega, áhrifin á framtíðarkynslóðir þegar íslenska ríkið hefur sýnt það í verki að það virðir einfaldlega ekki eignarrétt?

Forseti. Vandinn er óumdeildur. Árið 2004 voru gerðar breytingar á fyrirkomulagi fjármögnunar Íbúðalánasjóðs sem fólu í sér að sjóðurinn var fjármagnaður með óuppgreiðanlegum skuldabréfum, verðtryggðum á föstum vöxtum. Áhætta ríkisins var glannaleg því að lánþegar höfðu heimild til að greiða upp lán sín hvenær sem er, ríkið var fast en lánþeginn ekki. Og nú á að breyta þessum skuldabréfum með lögum. Vandinn er bara sá að fjármálaráðherra er þar brotlegur við stjórnarskrá. Alþingi þarf auðvitað að ræða vandlega hvernig á að leysa stöðu ÍL-sjóðs og Viðreisn mun ekki veigra sér við slíkri umræðu. En lausnirnar verða að vera byggðar á sanngirni og að lágmarki að vera löglegar. Það er ekki hægt að tækla pólitísk mistök með því að gera önnur stærri. Meðferðin má ekki vera hættulegri en sjálfur sjúkdómurinn og stjórnvöld ættu að setjast við samningaborðið og reyna að ná fram skynsamlegri og löglegri lendingu.

Fyrir liggja tvö vel rökstudd lögfræðiálit um að í boðaðri lagasetningu felist brot á eignarréttarákvæði stjórnarskrár sem muni framkalla bótaskyldu ríkissjóðs. Hvers vegna hefur formaður Sjálfstæðisflokksins engar áhyggjur af því að tillögur hans séu taldar aðför að eignarréttinum sjálfum? Málið er í mínum huga skýrt lagalega; þessar hugmyndir fela í sér brot á stjórnarskrá. Pólitískt markar þessi hugmynd hins vegar viss tímamót, að formaður Sjálfstæðisflokksins ætli að virða eignarréttindi fólks að vettugi. Lífeyrissjóðirnir, fulltrúar, lífeyrisþega landsins, hafa sagt að þessar tillögur muni leiða til dómsmála. Dómsmál um stöðu eignarréttarins á Íslandi muni setja viðskiptalífið í uppnám, hafa alvarleg áhrif á trúverðugleika ríkissjóðs. Og hver verður staða ríkissjóðs í samningum þegar þetta er orðsporið? Hvaða lánskjör bjóðast stjórnvöldum sem ganga svona fram?

Forseti. Fjármálaráðherra hefur talað um þetta mál eins og hann sé með þessu að sýna ábyrgð, að hann sé með þessu að gæta hagsmuna ríkissjóðs og framtíðarkynslóða. En þá spyr ég: Hvaða mynd er hæstv. fjármálaráðherra að teikna upp þegar ríkið hefur með lagasetningu í reynd afnumið eignarréttinn? Þegar ríkið hefur fýrað upp í dómsmál þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er í stríði við lífeyrisþega, skaðað eðlilegt traust um að gerðir samningar standi? Þjónar það hagsmunum framtíðarkynslóða? Auðvitað ekki. Og það þjónar heldur ekki hagsmunum ríkissjóðs til lengri tíma.

Forseti. Spurningar mínar í dag varða stöðu lífeyrissjóðanna sem settust við samningaborð með stjórnvöldum í kjölfar hótana fjármálaráðherra um lagasetningu ef samningaviðræður skiluðu ekki árangri. Spurningar mínar lúta að því hvaða greiningar lágu fyrir innan fjármálaráðuneytisins á sínum tíma um möguleg viðbrögð markaðarins við yfirlýsingum ráðherrans á sínum tíma og á áhrifum á lánshæfismat. Spurningar mínar lúta að því hvað ráðherra segir um áhrif af boðaðri lagasetningu á trúverðugleika ríkissjóðs á fjármálamörkuðum. Lífeyrissjóðirnir hafa talað um það að samkomulagið sem fjármálaráðherra boðaði myndi fela í sér skerðingar á eignum lífeyrissjóðanna sem myndu leiða til tuga milljarða króna tjóns. Telur ráðherra að lífeyrissjóðirnir hafi allir sem einn misskilið tillögur hans? Hvaða augum lítur hann þung orð í lögfræðiálitum?