Traust og trúverðugleiki íslenska ríkisins á fjármálamörkuðum.
Virðulegi forseti. Eins og ég sagði áðan þá tel ég það mikilvægt fyrir ríkissjóð að eyða þeirri óvissu sem skapast hefur vegna ÍL-sjóðs. Eins og fram hefur komið telja stjórnvöld sig vera að uppfylla að fullu þá skilmála sem skuldabréfin kveða á um og um það stendur einmitt styrinn. Kröfuhafar, lífeyrissjóðirnir íslensku, telja stefnu stjórnvalda fela í sér tugmilljarða tjón þótt ekki liggi fyrir hvert mögulegt tap kunni að vera. Ég vil segja um þennan málflutning að tjónið, möguleg eignaskerðing kröfuhafa, kemur svo sem ekki til vegna áforma stjórnvalda nú. Hún kemur til vegna yfirvofandi gjaldþrots ÍL-sjóðs. Það steytir því á skilningi milli ríkisins annars vegar og lífeyrissjóðanna hins vegar á því hver ábyrgð ríkisins er vegna skilmála skuldabréfanna. En það er líka mikilvægt fyrir okkur sem hér erum að hafa það í huga að við erum hér að lágmarka áhættu ríkissjóðs fyrir hönd samfélagsins alls. Það er okkar hlutverk. Ég get tekið undir margt af því sem komið hefur fram hérna í dag, t.d. það að lánin hafi ekki verið með uppgreiðsluákvæði. Þetta var ekki gott fyrirkomulag sem átti sér stað fyrir 20 árum. En lífeyrissjóðirnir hafa líka fjölmörg tækifæri til að fjárfesta til að tryggja hag sinna umbjóðenda til framtíðar. Sem betur fer eru færin mörg hér á landi. Ég tel mikilvægt að við finnum leið til að sætta sjónarmið í þessu máli eins og svo margir aðrir. En þegar og ef málið sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda kemur til þingsins þá fáum við einmitt tækifæri til að takast á um þau sjónarmið sem hafa verið viðruð hér í dag og þar ættu þau öll að koma fram sem eiga við í þessu máli og allir þeir sem hafa af þeim talsverðar áhyggjur.