Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 105. fundur,  10. maí 2023.

aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024--2028.

860. mál
[16:33]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Um leið og má fagna því að hér sé ákveðin tilhneiging til að gera bragarbót fyrir eldra fólk þá ætla ég að harma það að sú þingsályktunartillaga sem við fengum samþykkta hér fyrir réttum tveimur árum í þessum þingsal, einróma samþykki alls þingheims, um að hér yrði sett á fót embætti hagsmunafulltrúa fyrir eldra fólk, þá harma ég að ekki skuli hafa verið staðið við það af framkvæmdarvaldinu og svona freklega gengið á okkar skýra vilja.

Forseti. Við greiðum atkvæði með þessari tillögu. En ég skora um leið á hæstv. ráðherra að koma til móts við skýran vilja löggjafans og halda áfram þeirri vinnu sem hann er að vinna fyrir eldra fólk og koma á fót embætti hagsmunafulltrúa fyrir eldra fólk.