aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024--2028.
Herra forseti. Ég get bara ekki orða bundist. Að kalla það storm í vatnsglasi, að koma hérna með brotabrot af því í fangið á eldra fólki sem hagsmunafulltrúi eldra fólks hefði sinnt eins og skýr vilji löggjafans var, hver einasti alþingismaður samþykkti það ásamt ráðherrum og öllum í þessum þingsal að þessu embætti yrði komið á, og að einhver stjórn úti í bæ sé bærari til þess að taka ákvarðanir um það hvað eldra fólki er fyrir bestu — ég mótmæli því harðlega. Ég mótmæli því harðlega að við hér sem löggjafinn séum sett skör neðar en einhver stjórn úti í bæ og ég mótmæli því harðlega að hagsmunafulltrúi aldraðra sé ekki miklu umfangsmeiri og skili miklu betra starfi til hagsbóta fyrir eldra fólk heldur en þó þessi áætlun sem hér er í atkvæðagreiðslu nú.