Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 105. fundur,  10. maí 2023.

aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024--2028.

860. mál
[16:46]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég ætlaði nú ekki að koma í aðra ræðu en mér blöskrar bara dálítið orðalag hæstv. ráðherra, að tala um storm í vatnsglasi. Mér finnst það vera svona, ég veit það ekki, asnalegt að orða þetta þannig út af því að þetta snýr að þingsályktunartillögu sem var samþykkt á þingi fyrir tveimur árum síðan. Á þessum tveimur árum var ekki hægt að fara í þá vinnu sem hæstv. ráðherra er að leggja til núna, þ.e. þessa skoðun sem á að fara í og þarfagreiningu áður en tekin er ákvörðun um það. Það eru tvö ár. Það hefði alveg verið hægt að fara í þessa vinnu strax þegar þessi þingsályktunartillaga var samþykkt og þá gætum við verið að uppskera úr þeirri vinnu núna og þá værum við með hagsmunafulltrúa aldraðra inni í þessari aðgerðaáætlun þannig að ég skil fullkomlega að Flokkur fólksins sé pirraður yfir þessu. Ég deili þeim pirringi og mér finnst að við ættum öll, þingmenn — út af því að mér finnst þetta vera vanvirðing við okkur, auðvitað þegar við samþykkjum þingsályktunartillögu, þetta er vilji þingsins sem við látum í ljós, þá á framkvæmdarvaldið að taka það upp og klára það bara.