Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 105. fundur,  10. maí 2023.

skipulagslög.

144. mál
[17:06]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða frumvarp þar sem gerðar eru breytingar á skipulagslögum og m.a. dregið úr sjálfstæði sveitarfélaga. Ég tel að við þurfum virkilega að skoða þetta vel áður en við samþykkjum það. Mig langar að óska eftir því að málið fari eftir 2. umr. aftur til nefndar.