skipulagslög.
Virðulegi forseti. Mér finnst rétt að koma og skýra þetta betur. Hér er talað um að frumvarpið nái ekki tilgangi sínum og einfaldi ekki skipulagsferla.
Í stað þess að gefin verði út þrjú framkvæmdaleyfi ef línan fer gegnum þrjú sveitarfélög og að skipulagsákvarðanir verði fleiri, þá er eingöngu lagt til að til verði ein skipulagsákvörðun og eitt framkvæmdaleyfi. Ég get ekki séð betur en það verði til að einfalda ferlið töluvert.
Ég, sem fyrrverandi sveitarstjórnarfulltrúi, tek undir það að mikilvægt sé að virða skipulagsvald sveitarfélaga. Hins vegar er ekki verið að ræða það hér hvort fara eigi í framkvæmd heldur með hvaða hætti. Fulltrúar sveitarfélaga hafa fulla aðkomu að ferlinu.