skipulagslög.
Virðulegi forseti. Það mál sem hér um ræðir hefur fengið mikla og góða umfjöllun í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Við höfum tekið tillit til þeirra athugasemda sem fram komu, fundað með aðilum og gert breytingar á frumvarpinu þannig að það nái markmiðum sínum mun betur.
Hér er kannski verið að tala um sitt hvort markmiðið. Eitt af markmiðunum var að útbúa skýran feril ef ágreiningur kæmi upp milli fleiri en eins sveitarfélags — að setja það í feril sem tryggði fulla aðkomu sveitarfélaga.
Hitt markmiðið, sem var niðurstaða skýrslu sem forsætisráðuneyti lét gera, var að útbúa þyrfti greiðari og skilvirkari ferla til að leggja línur almennt. Því markmiði er kannski ekki náð og við þurfum að halda áfram að finna leiðir þar.
En þarna hefur fundist lausn varðandi deilumál. Ég held því að málið sé komið í góðan farveg.