Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 105. fundur,  10. maí 2023.

skipulagslög.

144. mál
[17:13]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Því miður fór þetta með frávísunartillöguna eins og mig grunaði. Hér er tillaga sem á að tryggja að þegar farið er í svokallað raflínuskipulag, eins og hér er kveðið á um, bætist þar við greinina orðin: „og staðfest er að skili umtalsverðum umbótum í afhendingaröryggi raforku fyrir almenna notendur“.

Við erum hér flesta daga og mjög oft í þessum sal að ræða um raforkuöryggi og afhendingaröryggi. Það er mjög mikilvægt að löggjafinn sé sér meðvitaður um að afhendingaröryggi til almennings, heimila og venjulegra fyrirtækja verður að vera í forgangi.

Ég segi já.