Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 107. fundur,  10. maí 2023.

stjórn fiskveiða.

596. mál
[17:32]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Nú erum við hér að taka til umræðu í þriðja skipti mál sem hæstv. matvælaráðherra hefur skutlað inn á þingið. Það á það sammerkt með öðrum frumvörpum sem hún hefur skutlað inn á þingið upp á síðkastið að það er ekki að finna að það eigi sér einhverja stoð í stefnu Vinstri grænna. Hér er einfaldlega útfærsla á braskinu sem fer fram í fiskveiðistjórnarkerfinu. Hún kemur hér með svona tilhliðrun fyrir þá stóru sem eru í braskinu. Ég held að það sé umhugsunarvert að við umfjöllun þessa máls skuli þingið ekki taka það til skoðunar út frá markmiðum laga um stjórn fiskveiða, þ.e. byggðamál og nýting fiskstofna og að byggja þá upp. Það eru auðvitað þeir meginþræðir sem á að styðjast við þegar verið er að setja lög. Það er alls ekkert í þessu máli. Það kemur kannski ekkert á óvart eftir að hafa farið yfir fyrri frumvörp hæstv. matvælaráðherra, það er bara sveigjanleiki fyrir suma, þá stærri, og áfram er ekkert horft til þess að hafa einhvern sveigjanleika fyrir þá minni. Þá vil ég sérstaklega nefna strandveiðiflotann. Hér er verið að tala um að auka sveigjanleikann verulega fyrir stórútgerðina en enn hefur hæstv. matvælaráðherra ekki gefið annað út en að hún ætli að flauta alla 700 aðilana sem eru á strandveiðum í land um leið og þær þröngu veiðiheimildir sem þeir hafa verða uppurnar.

Ég furða mig örlítið á því þegar maður fer yfir nefndarálitið og vinnuna í þessari nefnd, fyrst menn voru að opna 11. gr. laganna sem er um tegundir og tilfærslur og tilfærslur á milli ára, að menn hafi ekki horft til minni aðila. Sérstaklega er það undarlegt með þingmenn Vinstri grænna sem hafa haft það á stefnuskrá sinni um langt skeið að efla smábátaútgerð og auðvitað lagði fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, Jón Bjarnason, grunninn að þeirri stefnu á sínum tíma. Það var samin góð greinargerð, Hafið, bláa hafið. En í stað þess, þegar Vinstri grænir fá aftur lyklavöldin í matvælaráðuneytinu sem fer með sjávarútvegsmálin, að halda áfram á þeirri braut og líta til eigin stefnu, þá er það alls ekki á borðinu heldur virðist miklu frekar vera á dagskránni að herða á braskinu. Það er alveg stórundarlegt.

Þessi breyting, sem felur í sér þennan sveigjanleika, er alveg með ólíkindum. Vissulega eru taldar upp einhverjar prósentutölur, það sem á að færa á milli ára af veiðiheimildum, en svo segir að ráðherra geti með reglugerð, að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar, hækkað fyrrgreind hlutföll aflamarks í einstökum tegundum telji hann slíkt stuðla að betri nýtingu tegundarinnar. Það er sem sagt ekkert verið að tala um að lækka, það er bara hækkað. Þannig er bara verið að hugsa um að auka þetta svigrúm fyrir hina stóru. Mér finnst ótækt, þegar verið er að fjalla um tilfærslur í þessari grein, 11. gr., að það sé ekkert horft til þeirra minni, það sé ekkert horft til þess að auka svigrúm til strandveiða, það sé ekkert horft til svigrúms vegna línuívilnunar og fleiri þátta. Ég spyr: Hvers vegna er það svo? Jú, það er bara þannig að hæstv. matvælaráðherra hirðir ekkert um rök þeirra minni í greininni. Hún fundar ekki með Landssambandi smábátaeigenda og skutlar greinilega hér inn hverju frumvarpinu á fætur öðru sem er bara um að auka á braskið í kerfinu og einkavæðingu fiskimiðanna.

Það sem þetta ágæta frumvarp upplýsir er að það er allt týnt, öll fiskifræðileg rök eru týnd. Til dæmis er heimilt að flytja allt að 15% aflamarks í úthafsrækju og humri. Ef það væri verið að hugsa um þjóðarhag, sem við eigum að gera hér og erum kjörin til, þá á auðvitað að horfa til þess að þjóðin nýti úthafsrækjustofninn og veiðar séu einfaldlega gefnar frjálsar þegar það bara liggur á borðinu að úthafsrækjan er ekki veidd svo árum skipti. Og hvaða tímaskekkja er það, hæstv. forseti, að heimila hér að flytja 15% aflamarks að lágmarki, af því að ráðherra getur aukið það ef honum dettur það í hug? Það er umsögn frá Hafró hvað það varðar, um 15%. Það vita það allir og ég vona að hv. þingmenn í atvinnuveganefnd viti það einnig að það er ekkert verið að veiða humar þannig að þetta er auðvitað taktlaust. Það er taktlaust að menn komi með svona frumvarp sem opnar á allt. Og hvers vegna er ég að segja þetta? Jú, vegna þess að ef það á kannski að veiða 2.000 til 5.000 tonn, sem ekkert er, í þorski umfram fyrir smábátana þá virðist allt fara á hliðina í ráðuneytinu. En með þessu ráðslagi er verið að opna á flutning á tugþúsunda tonna aflamarki milli ára í makríl og hinum og þessum tegundum. Og ekki nóg með það heldur heimilar 11. gr. að það eigi að vera hægt að breyta einni tegund í aðra tegund. Í stað þess að veiða eina botnfiskstegund getur þú breytt henni í aðra tegund og eitthvað braskað með þetta.

Auðvitað segir þetta ákveðna sögu og ég held að við eigum að nota þetta sem tækifæri. Þegar menn geta flutt 15% af aflamarki milli ára og breytt einni tegund í bókunum í aðra þá segir það manni auðvitað að þessi fiskifræði og þessi kvótasetning er mjög ónákvæm. Þeir sem eru inn undir hjá stjórnvöldum, þ.e. hinir stærri, geta hliðrað öllu til en ekki þegar kemur að minni aðilunum sem eru t.d. að leigja frá sér aflaheimildir. Ég er mjög hissa á því að hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skuli ekki líta til þess einnig að opna og hliðra til fyrir þá minni í greininni sem eru að leigja. Ef þeir ná ekki að nýta veiðiheimildirnar á fiskveiðiárinu þá bara brenna þær upp. Þeir geta ekkert flutt þær á milli ára eða breytt í aðrar tegundir eins og þetta snýst allt um hér.

Tækifærið sem er í þessu er það að þetta upplýsir um að það er mikill sveigjanleiki fyrir suma en ekki aðra og að ráðgjöfin er a.m.k. ekkert heilög og alls ekki í þeim tegundum sem hafa verið taldar upp. Það var mjög upplýsandi að fara yfir hvað gerist ef menn veiða örlítið umfram ráðgjöfina. Örlítið er kannski ekki réttnefni, ég vil frekar segja ef menn veiða gríðarlega mikið umfram ráðgjöfina. Við höfum mjög skýr dæmi þess á síðustu árum. Það hefur komið fram að á síðustu árum hefur makríllinn verið veiddur 41% umfram ráðgjöf. Gerðist eitthvað slæmt? Gerðist eitthvað? Nei, makrílstofninn bara óx. Hver var skýringin? Jú, að sögn fiskifræðings, eins helsta fiskifræðings Hafró í uppsjávarfiski, hann viðurkenndi það bara, var stofnmatið lélegt og ónákvæmt. Þetta eru ekkert heilög fræði. Og hvað gerðist síðan í framhaldi? Stofnmatið var aðlagað að aflanum. Þetta á ekki bara við um makrílinn. Það á líka við um norsk-íslensku síldina. Hún hefur verið veidd 54–65% umfram ráðgjöfina. Kolmunninn hefur verið veiddur 47% umfram ráðgjöf á síðustu árum. Gerðist eitthvað? Nei, þessir stofnar hafa bara vaxið. Það segir í rauninni allt um ráðgjöfina. En það segir líka mjög mikið um stjórnvöld á Íslandi þegar þau koma með svona frumvörp, opna 11. gr. sem segir að hægt sé að breyta einni tegund í aðra og færa heimildirnar á milli ára. Þau virðast ekki heldur trúa ráðgjöfinni, ekki stífar en svo, og þegar kemur að þeim stærri í greininni þá sé allt í lagi að færa tugþúsundir tonna, jafnvel 100.000 tonn, á milli fiskveiðiára. En þegar kemur að þeim minni í greininni þá er ekkert hægt að gera. Ég held að menn verði aðeins að hugsa þetta upp á nýtt.

Ég vil líka vekja athygli á því að það eru fleiri smugur í þessu kerfi fyrir þá sem eru stærri í greininni og hafa yfir fiskveiðiheimildum að ráða. Það er VS-aflinn. Þá geta menn landað ákveðinni prósentutölu í Verkefnasjóð sjávarútvegsins, gott ef ekki stefnir í að það verði um 5.000 tonn sem muni verða landað utan kvóta og fara í verkefnasjóðinn. Stjórnvöld virðast ekkert hafa áhyggjur af því. En þegar komið er að strandveiðunum þá er bara flautað í land. Síðast var það 21. júlí, hvað verður það í sumar?

Mér finnst ekki annað hægt en að þeir sem ráða ferðinni í þinginu skoði þessi mál í samhengi, það er þessi gríðarlegi sveigjanleiki fyrir hina stóru, og horfa líka til þess að þegar veitt er umfram ráðgjöfina þá virðist það ekki hafa neinar alvarlegar afleiðingar fyrir stofnana sem um ræðir, hvorki makrílinn, kolmunnann né aðra. Að horfa á það þegar menn veiða umfram og það er verið að veita þeim stóru gríðarlegan sveigjanleika — það þarf líka að horfa til þeirra minni í greininni. En það virðist allt vera í járnum og ekki hægt að opna á eitthvert svigrúm fyrir nýliða í greininni. Það er auðvitað sorglegt þegar flokkar sem kenna sig við frelsi, einstaklingsfrelsi, eru tilbúnir til að flauta smábátana í höfn og koma síðan fram með svona frumvörp sem auka sveigjanleikann fyrir hina stóru. Ekki það að ég sé á móti því, en þetta fer ekki saman, herra forseti. Þetta fer ekki saman og þessu þarf að breyta. Það er aumt að horfa upp á Vinstri græna sem hafa enga hliðsjón af stefnu sinni heldur leggja bara hér fram enn eitt braskfrumvarpið. Ég trúi ekki öðru en að margir liðsmenn flokksins vítt og breitt um landið hljóti að fara að yfirgefa þessa skútu því að auðvitað er það ekki þannig að flokkurinn hafi verið kosinn út á þetta. Nei, sú stefna sem hann lagði fram gengur auðvitað út á allt annað. Hvað er það? Vistvænar veiðar, opna fyrir frelsi smábáta. Ekki bara frelsi fyrir Samherja og Brim heldur líka trillukarlana í Ólafsfirði, Flateyri, Súðavík og vítt og breitt um landið. Ég skora á hv. atvinnuveganefnd að taka þetta til skoðunar í þessu ljósi.