Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 107. fundur,  10. maí 2023.

skipulagslög.

1052. mál
[18:16]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á skipulagslögum varðandi hagkvæmar íbúðir, frumvarpi sem margir hafa beðið óþreyjufullir eftir.

Með frumvarpinu er lagt til að sveitarfélög fái heimild til að skilyrða allt að 25% af heildarfermetrafjölda íbúða við gerð deiliskipulags fyrir ný íbúðasvæði fyrir íbúðir sem falla undir lög um almennar íbúðir, þ.e. leiguíbúðir þar sem stuðlað er að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu, íbúðir sem uppfylla skilyrði fyrir hlutdeildarlánum og einnig lánum til leiguíbúða samkvæmt lögum um húsnæðismál.

Er hér um að ræða íbúðir fyrir fólk sem er undir tilteknum tekju- og eignaviðmiðum sem stjórnvöld hafa lagt áherslu á að styðja við til að auka möguleika fólks til að eignast eða leigja húsnæði á viðráðanlegum kjörum.

Frumvarpið byggist á tillögum sem komið hafa fram í vinnu stjórnvalda og heildarsamtaka á vinnumarkaði um aðgerðir til að auka framboð á íbúðum og bæta stöðu á húsnæðismarkaði, nánar tiltekið á vettvangi átakshóps árið 2019 og í kjölfarið starfshóps sem var að störfum árið 2022.

Kallað hefur verið eftir lögfestingu svipaðs ákvæðis og finna má í danskri löggjöf, svokallaðs Carlsberg-ákvæðis, í tillögum áðurnefndra hópa, þ.e. átakshóps stjórnvalda frá 2019 og heildarsamtaka á vinnumarkaði, sem og starfshóps forsætisráðherra um umbætur á húsnæðismarkaði sem vann tillögur fyrir þjóðhagsráð.

Báðir hópar hafa lagt til að gerðar verði úrbætur á skipulagslögum með lögfestingu fyrrnefnds Carlsberg-ákvæðis. Ákall um innleiðingu ákvæðisins var áréttað með rammasamningi ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða á árunum 2023–2032 sem undirritaður var 12. júlí síðastliðinn.

Þar kemur fram að stefnt sé að því að auka framboð nýrra íbúða til að mæta fyrirsjáanlegri íbúðaþörf ólíkra hópa samfélagsins til skemmri og lengri tíma og stuðla þannig að auknum stöðugleika og jafnvægi á húsnæðismarkaði. Liður í því sé að veita sveitarfélögum heimild til að skilyrða uppbyggingu húsnæðis við ákveðna blöndun íbúðarhúsnæðis vegna ólíkra íbúahópa.

Ákvæði frumvarpsins tekur mið af danska Carlsberg-ákvæðinu. Danska ákvæðinu var ætlað að stuðla að blandaðri byggð og nær það til almennra íbúða samkvæmt dönsku lögunum um almennar íbúðir en undir þau fellur leiguhúsnæði með svipuðum skilyrðum og fjallað er um í íslensku lögunum um almennar íbúðir á Íslandi.

Eins og áður segir tekur útfærsla ákvæðisins hér mið af áðurnefndu Carlsberg-ákvæði en nær þó einnig til íbúða sem uppfylla skilyrði um hlutdeildarlán og lán til leiguíbúða sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni. Er það í samræmi við áðurnefndar tillögur átakshópsins og starfshópsins sem og við áðurnefndan rammasamning ríkis og sveitarfélaga.

Með þessari útfærslu nær ákvæðið til fjölbreyttari tegunda íbúða, aðallega þó til leigu og kaups fyrir tekjulægri hópa, enda má nefna að það er talsverður munur á umfangi leigumarkaðar hér og í Danmörku. Í Danmörku hefur hann verið byggður upp í 100 ár en við erum að taka fyrstu skrefin í slíku hvað opinbera aðila varðar.

Frumvarpinu er ætlað að aðstoða sveitarfélög og hvetja þau til að skipuleggja byggð fyrir fjölbreyttari tegundir íbúða og stuðla að því að bæta húsnæðisöryggi fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Þrátt fyrir að um heimildarákvæði sé að ræða má telja að lögfesting ákvæðisins skjóti styrkari stoðum undir ákvörðun sveitarfélaga um að setja fram í skipulagsskilmálum deiliskipulags kröfu um að ákveðið hlutfall af heildarfermetrafjölda verði skilyrt við tilgreindar tegundir íbúða við gerð deiliskipulags fyrir ný íbúðasvæði. Þannig er frumvarpið liður í því að auka framboð á hagkvæmu leiguhúsnæði til langtímaleigu.

Á grundvelli skipulagslaga ber sveitarstjórnum að setja fram stefnu sína um þróun sveitarfélagsins varðandi t.d. landnotkun, byggðaþróun og byggðamynstur. Þar er lagður grundvöllur fyrir gerð deiliskipulags. Í deiliskipulagi eru síðan teknar ákvarðanir um lóðir, lóðanotkun, byggingarreiti, byggðamynstur, þar með talið nýtingarhlutfall, útlit mannvirkja og form eftir því sem við á, og aðrar þær skipulagsforsendur sem þurfa að liggja fyrir vegna byggingar- og framkvæmdaleyfa.

Þá ber sveitarfélögum að greina með reglubundnum hætti þörf fyrir íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu með tilliti til mismunandi búsetuforma á grundvelli laga um húsnæðismál. Þannig ber þeim að gera húsnæðisáætlun til fjögurra ára um það hvernig þörf fyrir íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu verði mætt og tryggja framboð á lóðum til að mæta þeirri áætlun.

Skal sérstaklega meta þörf fyrir húsnæði til að mæta þörfum einstakra hópa, svo sem fatlaðs fólks, aldraðra, tekju- og eignaminni og námsmanna, auk húsnæðisþarfar á almennum markaði.

Sveitarfélögunum ber að greina þörfina eftir félagshópum, gera áætlun til að mæta þörfinni og tryggja framboð lóða til að áætlunin raungerist og er frumvarpsákvæðið sem hér er lagt til mikilvægur liður í þeirri vegferð.

Líkt og ég kom inn á áðan er með frumvarpinu lagt til að sveitarfélögum séu veittar heimildir til að gera kröfu um það að við gerð deiliskipulags verði allt að 25% af heildarfermetrafjölda íbúða innan skipulagssvæðis fyrir íbúðir sem falla undir lög um almennar íbúðir og íbúðir sem falla undir VI. kafla A og VIII. kafla laga um húsnæðismál.

Markmið laga um almennar íbúðir er að bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum með því að auka framboð á öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda.

Er um að ræða leiguíbúðir á viðráðanlegu verði, þar með talið fyrir námsmenn, ungt fólk, aldraða, fatlað fólk og fólk sem ekki er fært um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna eða verulegs fjárhagsvanda.

Í VI. kafla A laga um húsnæðismál er síðan fjallað um hlutdeildarlán sem ætluð eru þeim sem kaupa fyrstu íbúð sína og þeim sem ekki hafa átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár og eru undir ákveðnum tekjuviðmiðum.

Frumvarpið nær einnig til íbúða sem falla undir VIII. kafla laga um húsnæðismál en þar er um að ræða lán til leiguíbúða sem heimilt er að veita sveitarfélögum, félögum og félagasamtökum sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni og hafa það sem langtímamarkmið að byggja, eiga og hafa umsjón með rekstri leiguhúsnæðis.

Þá nær heimildin til nýrra íbúðasvæða, hvort sem er í nýjum hverfum eða á þegar byggðum svæðum, svo sem á þéttingarreitum eða þegar um breytta nýtingu skipulagsreits er að ræða. Er með því ætlunin að styðja við þá viðleitni sveitarfélaga að þétta og þróa byggð með t.d. breyttri nýtingu skipulagssvæða.

Til að sveitarfélög geti þróað skipulagssvæði innan sinna staðarmarka með heildarhagsmuni sveitarfélags og íbúa að leiðarljósi er eðlilegt að heimildin nái til lands hvort sem er í eigu sveitarfélaga, ríkis eða einkaaðila.

Það er von mín að lögfesting ákvæðisins muni auðvelda sveitarfélögum að stuðla að félagslegri fjölbreytni í íbúðahverfum sínum. Þá hef ég þá trú að það muni til lengri tíma stuðla að auknum stöðugleika á húsnæðismarkaði og tryggja betur fjölbreytni og framboð búsetuúrræða fyrir almenning. Stöðugleiki í húsnæðismálum til lengri og skemmri tíma er sameiginlegt hagsmuna- og efnahagsmál okkar allra.

Virðulegi forseti. Ég hef rakið meginefni frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og síðan til 2. umr.