Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 110. fundur,  23. maí 2023.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hafa borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1635, um eftirlit með sölu áfengis, frá Diljá Mist Einarsdóttur, á þskj. 1636, um samskipti vegna fjárhagsstöðu Landhelgisgæslu Íslands, frá Birni Leví Gunnarssyni, og á þskj. 1638, um afplánun í fangelsi, frá Viðari Eggertssyni. Einnig hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1614, um kostnað við leiðtogafund Evrópuráðsins, frá Bergþóri Ólasyni. Að lokum hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við eftirfarandi fyrirspurnum; frá Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur á þskj. 1649, um áætlanir um mönnun í heilbrigðiskerfinu, á þskj. 1650, um biðtíma eftir sjúkrabíl og sjúkraflugi, á þskj. 1652, um heimilislækna, á þskj. 1653, um lækna, og að lokum á þskj. 1655, um stöðugildi lækna og hjúkrunarfræðinga.