153. löggjafarþing — 110. fundur,  23. maí 2023.

vopnaburður lögreglu í kjölfar leiðtogafundarins.

[14:06]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Leiðtogafundur Evrópuráðsins var haldinn hér á landi í síðustu viku. Á hann mættu æðstu ráðamenn margra Evrópuríkja líkt og frægt er orðið og ráðist var í ýmsar framkvæmdir og fjárfestingar vegna fundarins, ekki síst af hálfu löggæsluyfirvalda. Óljóst er hver heildarkostnaður ríkisins var af fundinum en tölum hefur verið fleygt allt upp í 4 milljarða. Fram hefur komið að öryggisgæsla hafi verið stærsti kostnaðarliðurinn vegna fundarins.

Fram hefur komið í fréttum að fest hafi verið kaup á miklu magni af skotvopnum í aðdraganda fundarins, hundruðum sjálfvirkra byssa sem lögreglumenn báru hér víðs vegar um miðbæinn dagana sem fundurinn fór fram. Þær spurningar hafa í kjölfarið vaknað hvað skuli svo eiginlega að gera við þessi vopn, hvort lögreglan hyggist eiga þau áfram eða selja þau. Þær spurningar vakna bæði vegna sjónarmiða um kostnað og af áhyggjum af því hvort hér sé um að ræða verulega og mögulega varanlega aukningu á vígbúnaði lögreglunnar. Ég spyr því hæstv. dómsmálaráðherra hvað hann hafi í hyggju með öll þessi vopn, hvort fundurinn hafi í reynd verið nýttur til að réttlæta stóraukinn vígbúnað íslensku lögreglunnar, hvort ætlunin sé sú að lögreglan haldi öllum þessum vopnum eða hvort þeim verði fækkað nú þegar fundurinn er yfirstaðinn.