vopnaburður lögreglu í kjölfar leiðtogafundarins.
Virðulegur forseti. Það er alveg rétt að þessi stóri fundur var mikil áskorun fyrir löggæsluna í landinu og krafðist mikils undirbúnings. Hann birtist í mörgu, til að mynda í mikilli og aukinni menntun lögreglumanna, mjög strangri þjálfun lögreglumanna alls staðar að af landinu, sem tóku þátt í þessu, og síðan búnaðarkaupum til að styðja við að geta sinnt þessu hlutverki. Búnaðarkaupin voru fjölbreytt. Það er m.a. alls konar varnarbúnaður, vesti og annað sem því tilheyrir. Eitthvað var keypt af skotvopnum, ég hef ekki tölur yfir það hversu mikið það var. Það þurfti að fjölga mótorhjólum í eign lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og þannig má lengi telja. Það sem eftir stendur, eftir þennan fund, virðulegur forseti, er að okkar lögreglumenn, okkar lögreglufólk, alls staðar að af landinu, búa yfir betri menntun, gríðarlega mikilli þjálfun og auknum búnaði af mörgu tagi. Við erum sem sagt með enn öflugra og reynslumeira lögreglulið en við höfðum fyrir. Ég hef líkt þessu við það að það er oft talað um að það sé mikil leikreynsla fyrir nýliða í landsliði að spila stóra landsleiki. Þetta var okkar stóri landsleikur á þessum vettvangi. Við komum til með að búa að því til lengri tíma. Það stendur ekki til að selja neitt af þeim búnaði, eftir því sem ég best veit, sem keyptur var inn vegna fundarins. Hann verður nýttur í framtíðinni.