153. löggjafarþing — 110. fundur,  23. maí 2023.

vopnaburður lögreglu í kjölfar leiðtogafundarins.

[14:10]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið sem mér heyrðist ansi skýrt. Það stendur ekki til að minnka vígbúnað lögreglunnar sem var stóraukinn í tilefni leiðtogafundarins. Ég ætla því að hafa seinni spurningu mína einfalda að þessu sinni: Var þessi stóraukning á vígbúnaði íslensku lögreglunnar rædd í ríkisstjórn?