vopnaburður lögreglu í kjölfar leiðtogafundarins.
Virðulegur forseti. Það var ekki farið sérstaklega yfir þau búnaðarkaup sem lögreglan stóð frammi fyrir og fór í í tengslum við þennan fund. Það var auðvitað sérstök rekstraráætlun gerð fyrir fundinn og þær tölur sem ég hef heyrt nefndar eru að kostnaðurinn við þennan fund hafi verið í kringum 2 milljarðar. Hluti af því voru þessi búnaðarkaup. Það var ekki farið sérstaklega yfir þau, hvorki í ráðuneytinu né á vettvangi ríkisstjórnar, enda um eðlileg kaup á búnaði að ræða til að lögreglan gæti rækt skyldur sínar til að gæta öryggis á þessum stóra viðburði.