riða og smitvarnir.
Virðulegi forseti. Nú eru rétt tveir mánuðir frá því að riða greindist á bæ í Miðfjarðarhólfi og telst það nú sýkt hólf. Riða hefur verið greind á tveimur bæjum og enn standa aðgerðir yfir við greiningu á svæðinu. Það er alltaf áfall þegar riða greinist í sauðfé og aflífa þarf allan stofninn. Þeim fréttum að riðusmit hafi greinst í Miðfjarðarhólfi, í Mekka sauðfjárræktarhéraða landsins, sem áður var talið hreint, er erfitt að kyngja og hugur okkar er hjá þeim bændum sem þurfa að drepa allt sitt fé á nokkrum dögum fyrir sauðburð. Það er áfall sem ekki nokkur bóndi á að þurfa að ganga í gegnum. Aðgerðum er lokið á þeim tveimur bæjum sem riða hefur greinst á. Strax eftir greininguna fór fram smitrakning á öðrum bæjum, á því fé sem hafði verið flutt og selt á aðra bæi frá þeim. Þetta er samkvæmt reglugerð um útrýmingu á riðuveiki og er nýtt til þess að útiloka frekari smit á svæðinu. Bændum er gert að afhenda féð og var farið fram á það að það yrði gert á sauðburðartíma, eins erfið og sú aðgerð er bæði fyrir menn og dýr. Vissulega krefst sú aðgerð að riða hafi greinst á þeim bæ sem kind er komin frá en niðurstaða um greininguna á hjörðinni liggur vart fyrir. Bændur hafa mótmælt því að þurfa að afhenda fé í sauðburði og eins er engin staðfesting á því að þeir fái það bætt. Það hefur verið staðfest að þessum aðgerðum hefur þó verið frestað til 19. júní næstkomandi.
Ég vil spyrja hæstv. matvælaráðherra í þessu sambandi: Hver er staðan í greiningum á þeim sýnum sem tekin voru af hjörðinni sem skorin var niður á Urriðaá? Í öðru lagi: Væri ekki skynsamlegt að bíða með sýnatöku úr sauðfé sem borið hefur á Urriðaá, sem var frá Urriðaá og hefur verið selt á aðra bæi, þar til lokaniðurstaða kemur úr greiningu á hjörðinni sem búið er að skera niður þar? Og í þriðja lagi: Er að vænta breytinga á verklagi við smitrakningu ef öll sýnin reynast neikvæð frá Urriðaholti?