153. löggjafarþing — 110. fundur,  23. maí 2023.

riða og smitvarnir.

[14:16]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir svörin og ég veit að við stöndum öll sem eitt að baki þessum bændum og því samfélagi sem verður fyrir áfalli. En reglugerð sem fjallar um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar er frá 2001 og er barn síns tíma að því leyti að nú hefur komið fram ný tækni, sem hefur verið nokkuð til umræðu, sem er arfgerðargreining á sauðfé til varnar riðunni og eins vegna kostnaðar og bóta til bænda sem þurfa að skera niður vegna riðu. Samkvæmt reglugerðinni skulu bændur fá greiddar bætur samkvæmt gildandi búvörusamningi meðan fjárleysi varir og ekki er minnst á kostnað við kaup á líffé þegar á að hefja búskap aftur, auk þess sem ekki er gert ráð fyrir kostnaði við uppbyggingu á gripahúsum heldur bara við niðurrif. Fleiri ákvæði þurfa endurskoðunar við þar sem bæði er um að ræða nýja tækni og þar sem staða sauðfjárræktar í landinu og aðstæður hafa breyst á síðustu 20 árum.

Ég vil því að lokum spyrja hæstv. matvælaráðherra: Er hafin vinna við breytingar á þessari reglugerð (Forseti hringir.) um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar í matvælaráðuneytinu?