Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 110. fundur,  23. maí 2023.

skipulagslög.

144. mál
[14:26]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það veldur mér áhyggjum þegar hv. þingmaður talar um að hér sé verið að stíga mikilvægt skref þar sem ég tel það vera í ranga átt. Það er sannarlega þannig að það er ákveðin skilvirkni fólgin í því að einhverjum ákveðnum aðila sé falið að taka ákvarðanir fyrir aðra. Það er hins vegar ekki réttlætanlegt að taka ákvörðunarvaldið af sveitarfélögum nema til þess sé brýn nauðsyn. Ég held að það viti það hver manneskja hér í þessum sal að að baki þessu frumvarpi liggja m.a. mál þar sem ekki er ágreiningur um hvort heldur hvernig eigi að fara í tilteknar framkvæmdir. Það er ekki réttlætanlegt að mínu mati að svipta sveitarfélög stjórnarskrárbundnum rétti sínum til að ráða sínum málum á þeim forsendum sem liggja hér að baki. Og ég endurtek: Það hefur ekki farið fram mat á því hvort útfærslan á þessum ákvæðum standist stjórnarskrá. Það er alvarlegt mál og það ætti að nægja út af fyrir sig til að vísa þessu máli til frekari vinnslu. — Ég segi nei.