Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 110. fundur,  23. maí 2023.

dómstólar.

822. mál
[14:31]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er svo sem ekkert nýtt að hér í þessum ræðustól og víðar sé það lausn Samfylkingarinnar á öllum vandamálum að ausa meiri peningum í málin en ekki að skoða af hvaða hagkvæmni við getum reynt að reka stofnanir ríkisins. Það þarf ekki að hafa áhyggjur af réttaröryggi í landinu út af stöðunni í Landsrétti en ástæða var til að hafa áhyggjur af því að eins og Landsréttur er skipaður er, út af réttindum dómara, að meðaltali einn dómari í fríi. Þess vegna erum við að bæta við dómara, einmitt til þess að fjölga teymunum um eitt, þessum þriggja manna teymum sem hv. þingmaður vísaði til. Ef dómurum hefði verið fjölgað um þrjá hefðum við áfram verið með tvo sem hefðu ekki nýst til starfa. Þetta er leið Samfylkingarinnar en það er leið ríkisstjórnarinnar og okkar Sjálfstæðismanna að gera þetta af hagkvæmni og skynsemi.