Stytting vinnuvikunnar.
Frú forseti. Þegar samið var um styttingu vinnuvikunnar fyrir u.þ.b. þremur árum hafði vinnutíma ekki verið breytt hér á landi í hálfa öld. En bókstaflega allt annað hafði breyst; þátttaka kvenna á vinnumarkaði, hækkandi menntunarstig, upplýsingabylting, snjallvæðing o.s.frv. Það er löngu tímabært að haga vinnuvikunni í takt við kröfur nútímans og gera hana sveigjanlegri en verið hefur. Lögin um 40 stunda vinnuviku frá 1971 eru sannarlega barn síns tíma.
Blekið hafi varla þornað á kjarasamningunum þegar heimsfaraldur brast á og samfélaginu voru settar miklar skorður. Reynsluna af styttingunni verður m.a. að skoða í því ljósi. En styttingin var, eins og hér hefur komið fram, í samræmi við þær áætlanir sem gerðar voru vegna vaktavinnubreytinganna og atvinnurekendur báru engan aukakostnað af styttingu dagvinnunnar. Við fengum ekki stóru uppsögnina, sem á ensku hefur verið kölluð „The Great Resignation“, í kjölfar Covid, eins og gerðist víðast annars staðar á Vesturlöndum. Markmið náðust og þjónusta skertist ekki, ætla ég að halda hér fram á meðan öðru er ekki haldið á lofti en óljósum vísbendingum sem ekki hafa verið fullrannsakaðar. Covid gerði innleiðinguna að því leyti til auðveldari að það var auðveldara að innleiða stafrænar lausnir og nýta tæknina eins og vera ber.
Mér finnst mjög mikilvægt að við ræðum hér í þessum sal heildarsýn okkar og vonandi samfélagsins á styttingu vinnuvikunnar, á það hvert við viljum stefna. Það segir sína sögu að 77% opinberra stofnana hafi valið fjögurra tíma styttinguna. Það var ekki endilega fyrirséð en það segir sína sögu um breytta stöðu á vinnumarkaði og hvernig atvinnurekendur, bæði hið opinbera og almenni vinnumarkaðurinn, verða að koma til móts við launafólk.