Stytting vinnuvikunnar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir að setja þetta mikilvæga mál á dagskrá og hæstv. ráðherra Bjarna Benediktssyni fyrir að taka þátt í umræðunni með okkur hér í dag. Stytting vinnuvikunnar skiptir sannarlega gríðarlega miklu máli. Hvert skyldi vera markmiðið? Jú, markmiðið er það að við getum eytt meiri tíma utan vinnustaðar, að við getum eytt meiri tíma með fjölskyldunni, að við séum ekki aðframkomin af þreytu eftir langan og erfiðan vinnudag og stöðuga langa vinnuviku. En skyldi þessu markmiði vera náð? Auðvitað erum við að feta sporin, það er ekki svo langt síðan við lögðum upp í þessa vegferð. En það kom í ljós, þegar við fengum að heyra í talsmönnum Landspítala – háskólasjúkrahúss, sem er jú fjölmennasti vinnustaður landsins, með ríflega 6.000 starfsmenn, að þar er því miður þannig varið að í stað þess að markmiðinu sé náð þá er það mikill skortur á starfsfólki að fólk bætir á sig aukavöktum og þarf að hlaupa hraðar. Það segir sig sjálft að við verðum að taka heildarmyndina, að við verðum að reyna að taka utan um þetta heildstætt. Þarna erum við að tala um starfsvettvang sem er rekinn af íslenska ríkinu, Landspítala – háskólasjúkrahús, og skort á starfskröftum. Stytting vinnuvikunnar nýtist í litlum sem engum mæli þeim heldur kom það þvert á móti berlega fram hjá talsmönnum Landspítala – háskólasjúkrahúss fyrir fjárlaganefnd um daginn að fólk er í raun að bæta á sig störfum. Betur má ef duga skal.
Ég vil bara hvetja menn til dáða. Hvers vegna gætum við t.d. ekki verið með fjóra vinnudaga? Í stað þess að stytta um fimm tíma á viku má þá ekki gefa starfsfólkinu sjálfu færi á því að segja til um það hvað þau vilja? Vilja þau kannski bæta við sig hálftíma á dag og sleppa því að vinna á föstudögum? Vá, hvað það yrði frábær helgi.