Stytting vinnuvikunnar.
Virðulegi forseti. Í lífskjarasamningunum var tekin upp vinnutímastytting hér á landi með þeim rökum að Íslendingar væru að vinna svo mikið miðað við aðrar þjóðir. Það er mikill misskilningur. Hér á landi hefur vinnustundum fækkað undanfarna áratugi án neinna sérstakra inngripa löggjafans eða aðila vinnumarkaðarins samkvæmt Hagstofu Íslands. Vinnutími hér á landi er ekki mikill í alþjóðlegum samanburði, ólíkt því sem sumir halda fram.
Hjá opinberum starfsmönnum er styttingin nú um 208 tímar á ári. Að frátöldum neysluhléum er þetta um 21 dagur. Að mínu mati var þessi aðgerð vanhugsuð og hefði þurft meiri undirbúning. Stytting vinnuvikunnar hefur t.d. valdið miklum vandræðum í heilbrigðiskerfinu. Þar var fyrir skortur á starfsfólki og það er í raun með ólíkindum að fara í vinnutímastyttingu þegar skortur á vinnuafli er svona mikill í heilbrigðiskerfinu. Sama má segja um lögregluna. Þar þurfti að ráða a.m.k. um 80 lögreglumenn til að geta mætt styttingunni.
Í meistararitgerð Eddu Maríu Birgisdóttur sem hún skrifaði um upplifun hjúkrunarfræðinga og lögreglumanna af styttingu vinnuvikunnar kemur fram, með leyfi forseta:
„Flestallir viðmælendur sögðust ekki hafa fundið fyrir því að stytting vinnuvikunnar væri til hins betra og að þau væru að vinna eitthvað minna eins og til stóð með innleiðingu styttingarinnar.“
Það verður ekki séð að viðvera barna á leikskólum hafi styst þrátt fyrir vinnutímastyttingu foreldra og er það umhugsunarefni. Kostnaðarauki vegna vinnutímastyttingarinnar er gríðarlegur og erfitt að sjá að við höfum haldið uppi framleiðni í landinu og það er mikið áhyggjuefni að yfirvinnustundum hefur ekki fækkað eins og lagt var upp með.
Hið opinbera verður að sníða sér stakk eftir vexti. Ríki og sveitarfélög höfðu ekki efni á þessari styttingu, svo einfalt er það.