153. löggjafarþing — 110. fundur,  23. maí 2023.

Stytting vinnuvikunnar.

[15:17]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Það kostar að fjárfesta í fólki. Ég vil byrja þessa umræðu af minni hálfu á því að minna hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann efnahags- og viðskiptanefndar og mögulega verðandi ráðherra, á þetta. Það kostar að fjárfesta í fólki og það kostar líka mikla peninga að gera það illa og gera það ekki. Áætlað er að vaktavinnufólk sé um þriðjungur ríkisstarfsmanna í um fjórðungi stöðugilda. Helstu breytingar við styttingu vinnuviku voru að vinnuvikan styttist úr 40 klukkustundum í 36 og með styttingunni myndaðist mönnunargat sem kallaði á fleiri stöðugildi ef vilji var til að halda uppi sömu þjónustu og verið hafði. Já, með styttingu vinnuvikunnar vorum við að gera nákvæmlega það; að fjárfesta í fólki. En kostnaðurinn var verulega vanáætlaður af hálfu stjórnvalda og það hefur ekki verið leiðrétt. Við þurfum að taka næstu skref. Við þurfum að gera fólki mögulegt að fjárfesta betur í börnunum sínum, þá sérstaklega tekjulægra fólki, þannig að þetta fólk þurfi ekki að vera í aukavinnu og aukaaukavinnu til að eiga þak yfir höfuðið og geta framfleytt fjölskyldu sinni. Það er verkefni stjórnvalda en það er nákvæmlega það sem stjórnvöld eru að vanrækja.

Ég vildi óska að hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans opnuðu aðeins augun fyrir þeirri stöðu sem er hjá íslenskum fjölskyldum sem ekki búa við þann kost að fá mikið ríkidæmi í heimanmund. Það er heldur ekki hægt að bera saman styttingu vinnuviku og hrósa þeim stofnunum sem geta bara stytt opnunartímann eins og hæstv. fjármálaráðherra gerði hér rétt áðan. Það er ekki hægt að stytta opnunartíma heilbrigðisstofnana. Það er ekki hægt að stytta opnunartíma hjá lögreglunni sem þarf að vera á sólarhringsvakt. Þessu verða stjórnvöld að átta sig á. Það er ekki hægt að hrósa þeim (Forseti hringir.) sem geta bara stytt skrifstofutímann, opnunartíma skrifstofunnar, og fært allt yfir í rafræna þjónustu og sagt að þar hafi nú tekist vel til, öfugt við þá sem vinna vaktavinnu við að þjónusta fólk í neyð.