Stytting vinnuvikunnar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda, hv. þm. Ingibjörgu Isaksen, og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir þessa umræðu. Stytting vinnuvikunnar hefur lengi verið baráttumál vinnandi fólks og undir mikilvægi þess höfum við Vinstri græn lengi tekið og lagt okkar af mörkum til að ná henni fram. Það er því fagnaðarefni að í flestum kjarasamningum sem undirritaðir voru á árunum 2019–2021, að undangengnum tilraunaverkefnum árin á undan, var kveðið á um heimild til að gera breytingar á skipulagi vinnutíma og stytta vinnuvikuna. Markmiðið er að gera vinnandi fólki betur kleift að samræma vinnu og einkalíf og þar með auka lífsgæði þess. Með þessum breytingum var einnig horft til þess að þær gætu aukið jafnrétti kynjanna, enda konur um 80% vaktavinnustarfsfólks hjá opinberum launagreiðendum og þær líklegri en karlar til að vera í hlutastarfi. Með þessum breytingum standa vonir til að vaktavinnufólk auki starfshlutfall sitt og þar með ævitekjur sínar og lífeyrisgreiðslur. Það er mál sem við erum öll hér inni, held ég, sammála um að er mikilvægt að ná fram.
Þetta heillaskref, virðulegi forseti, er bæði í takti við kröfur og breyttan tíðaranda þar sem fleiri og fleiri meta gildi þess að geta varið meiri tíma með sínum nánustu. Þá er ekki loku fyrir það skotið að heimsfaraldur kórónuveirunnar, þar sem hægðist verulega á samfélaginu, hafi hraðað skilningi okkar allra á mikilvægi styttri vinnuviku. Við hreinlega fundum það á eigin skinni. Stytting vinnuvikunnar er enn eitt skrefið í átt til aukinnar velsældar í annars góðu samfélagi okkar og við höfum ekki endilega náð því jafnvægi sem við stefnum að en við komumst þangað.