Stytting vinnuvikunnar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka öllum sem hafa tekið hér til máls undir þessari umræðu því að umræðan er vissulega mikilvæg og ýmis atriði sem þarf að taka til skoðunar. Ég vil sérstaklega horfa til sveitarfélaga sem flest sjá sér ekki fært að halda sama þjónustustigi án aukins kostnaðar. Ef við horfum t.d. á leikskólana hefur stjórnendum reynst erfitt að finna útfærslu sem leiðir ekki til kostnaðarauka, enda má jafnvel líkja leikskólastarfi við vaktavinnu þar sem þú hleypur ekkert endilega frá börnunum eða starfinu sem þú ert að sinna. Sveitarfélög, sum hver, eru farin að viðurkenna að verkefninu fylgja aukin fjárútlát ásamt auknu álagi fyrir starfsmenn og stjórnendur. Þau eru farin að gera ráð fyrir auknum fjárútlátum vegna styttingar vinnuvikunnar við gerð fjármálaáætlunar. Mörg hver vísa til næstu kjarasamninga með framtíðina. Útfærslan hefur verið í allar áttir meðal sveitarfélaga en ekki allar í samræmi við meginmarkmið verkefnisins. Því liggur fyrir að það er þörf á samtali og aukinni samræmingu meðal stjórnvalda og atvinnulífsins um það hvernig við getum í raun útfært vinnuvikuna í takt við þróun samfélagsins. Þetta er vissulega áskorun og ekkert einfalt verkefni þegar við erum að horfa á, eins og bent hefur verið á hér í umræðunni, skort á vinnuafli í tengslum við heilbrigðisstarfsfólk, löggæslu o.fl. En í því ljósi má líka nefna að þetta snýst ekki eingöngu um vinnutímann, kannski snýst þetta líka um álag á vinnutíma því að það getur verið mismunandi á milli starfa, þú getur kannski unnið lengur en undir litlu álagi og öfugt.
Á 86. fundi 151. löggjafarþings árið 2021 var sérstök umræða um fjármögnun á styttingu vinnuvikunnar og þar sagði hæstv. fjármálaráðherra að fyrirkomulag styttingar vinnuvikunnar kæmi til endurskoðunar á þessu ári þar sem árangur yrði mældur og framtíðarsýn mynduð. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvernig hann telji að verkefnið hafi gengið heilt yfir og hvernig ráðuneytið horfir til framtíðar hvað varðar vinnutíma starfsmanna og hvaða sjónarmið vega mest í því samhengi. (Forseti hringir.) Verður horft til þess að taka utan um verkefnið heildstætt, því að það er alveg ljóst að sitt sýnist hverjum í þessu máli?