Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 110. fundur,  23. maí 2023.

kaup á færanlegu neyðarsjúkrahúsi fyrir Úkraínu.

1074. mál
[15:53]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég þakka fyrir þessa þingsályktunartillögu. Hér er um að ræða árás eins stærsta stórveldis mannkynssögunnar, eins stærsta — ekkert rosalega stórt núorðið, sem betur fer, en samt það stórt að það lætur þetta ganga yfir íbúa Úkraínu. Tillagan hérna hjálpar til við að verja líf og tillagan gæti, held ég, ekki verið meira viðeigandi fyrir herlausa þjóð, að útvega sjúkrahús. Kannski væri þetta allt betra ef það væru fleiri þjóðir sem væru herlausar, helst allar, því að ef enginn væri herinn væri ekkert til þess að nota til þess að ráðast á með. Ég held að við þurfum að fara að tala á alvarlegri nótum um afvopnun yfirleitt því að vopn eru yfirleitt notuð til að verja völd, til þess að halda völdum og það sjáum við svo berlega í þessari árás Rússa.

Nú erum við að leggja okkar af mörkum til jafns við aðra með þessari tillögu og það er eitthvað sem ég tek hjartanlega undir. Við eigum að gera það sem við getum til að verja réttindi og líf fólks. En vissulega voru uppi spurningar þegar það var verið að bera þessa tillögu undir þingflokkana — við erum í því ástandi að hugsa vel um ríkisfjármálin — um hvað væri og hvernig væri viðeigandi að bregðast við því að aðrar þjóðir hefðu verið að spýta í við sinn stuðning. Að sjálfsögðu þurftum við að fylgja því eftir og vera alla vega jafnokar hvað það varðar. Við höfðum áður gert mun betur hlutfallslega sem lítil þjóð en eftir því sem stríðið varir lengur þarf að stíga lengri og stærri skref til að hjálpa til við að verjast svona árásum.

Ég tel þetta góða aðferð til að eiga samtal við þingið um það hvernig við þróum áfram hvernig við styðjum við síbreytilegt ástand, svona alvarlegt ástand, af því að við viljum einmitt hafa fyrirvarann á, ekki að það komi okkur á óvart eftir á að einhverjum milljörðum hafi verið eytt hingað og þangað. Við þurfum að hafa samtalið alltaf fyrir opnum tjöldum og framarlega í umræðunni en ekki eftir á í umræðunni. Ég held að það mætti taka meira til fyrirmyndar hvernig þetta vinnulag er gagnvart öðrum verkefnum ríkisins almennt séð. En ég þakka kærlega fyrir þessa nálgun.