umræða um efnahagsmál.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir að taka vel í þessa beiðni. Við þurfum að nýta mjög vel þær þrjár vikur sem eftir eru af þessu löggjafarþingi til þess einmitt að ráðast í aðgerðir til að verja heimilisbókhaldið hjá fólkinu í landinu. Við þurfum að verja leigjendur fyrir snjóhengju á leigumarkaði með breytingum á húsaleigulögum. Við þurfum að hækka vaxtabætur, sérstaklega til þeirra heimila sem eru í senn tekjulág og finna fyrir æ meiri greiðslubyrði, og við þurfum að liðka hér fyrir aukinni húsnæðisuppbyggingu, ráðast í lagabreytingar sem liggja fyrir þessu þingi, klára þær til þess að endurvekja trú fólks á að samningsmarkmið rammasamningsins um húsnæðismál geti náðst. Ég vil bara brýna fyrir þingheimi að við tökum saman höndum um þessi mál, nýtum þessar þrjár vikur vel og sýnum fólkinu í landinu að við stöndum með því á tímum húsnæðiseklu, á tímum mikilla vaxtahækkana og mikillar verðbólgu.
Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir að taka vel í þessa beiðni.