umræða um efnahagsmál.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir þetta. Því miður var núna í þrettánda skiptið stýrivaxtahækkun hjá Seðlabankanum. Hryðjuverkin halda áfram gagnvart ungu fólki með stýrivaxtahækkunum, 40.000 kr. hækkun á 40 millj. kr. láni enn eina ferðina, einstaklingar komnir með yfir 200.000 kr. aukavaxtagreiðslur. Þetta gengur ekki upp. Á sama tíma kemur skýrsla frá félagsvísindadeild Háskóla Íslands sem sýnir svart á hvítu að þeir sem lifa í almannatryggingakerfinu, þeir verst settu, hafa ekki efni á lyfjum, mat, læknisþjónustu. Það verður að gera eitthvað. Þessi ríkisstjórn er steinsofandi. Hún sér ekkert, talar ekkert, heyrir ekkert og gerir ekkert. Það er kominn tími til að við höldum hérna almennan fund og vekjum hana þannig að hún fari nú að hjálpa þeim sem þurfa virkilega á hjálp að halda.