umræða um efnahagsmál.
Forseti. Ég tek undir þá beiðni sem hefur komið fram um að hafa þingfund strax á morgun til að ræða stöðu efnahagsmála af því að það er alveg augljóst að efnahagsstjórnin er að mistakast. Við erum komin með stýrivexti hátt í 9%. Verðbólgan er einhvers staðar rétt rúmlega þar, tæplega 10%, og við verðum að fara að fá svör frá ráðherranum um það af hverju ekki er verið að gera meira en raun ber vitni. Af hverju er efnahagsstjórnin, sem var sögð vera í fjárlagafrumvarpinu, ekki að virka? Er svarið ekki augljóst? Niðurstaðan er augljós. Hún er ekki að virka af því að þau eru einfaldlega ekki með á nótunum. Þetta er mjög klassískt. Það er í raun bara beðið um neyðarfund hérna til þess að ræða þessi mál í því formi að ráðherrar komi og svari, ekki bara einu sinni eða tvisvar með einhverjum yfirlýsingum, heldur þurfa þeir að koma og svara þessum spurningum. Þá er svarið bara: Nei, heyrðu, í næstu viku einhvern tímann. Málið er alvarlegra en það.