Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

umræða um efnahagsmál.

[15:09]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. forseta fyrir að taka vel í þessa beiðni okkar í þingflokki Samfylkingarinnar. En ástæða þess að við óskum eftir að hér fari fram umræða er kannski þessi knappi tími sem þingsköpin leyfa í óundirbúnum fyrirspurnatíma og öðru til að eiga umræður á dýptina um einstaka mál. Við erum með fordæmi fyrir slíkri umræðu. Þetta átti sér stað nokkrum sinnum þegar við vorum að glíma við heimsfaraldur. Nú erum við að eiga við annars konar faraldur sem er aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum og ég held að við verðum bara að gefa okkur rúman tíma í þetta, ekki vera með of knappt form eða takmarkaðan fjölda þingmanna. Þá held ég að við hljótum líka að óska eftir því að fleiri ráðherrar en bara einhver einn taki þátt í umræðunni. Ráðherrarnir eru auðvitað líka kjörnir þingmenn á Alþingi Íslendinga og ég held (Forseti hringir.) að við hljótum að vera sammála um að þetta varðar okkur öll, algjörlega þvert á málaflokka hvers og eins ráðherra. Ég óska eftir að það verði reynt að bregðast við þessu sem fyrst.