Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

umræða um efnahagsmál.

[15:10]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Ég get svo sannarlega tekið undir að það ríkir ákveðið neyðarástand í efnahagsmálum þjóðarinnar. Hagstjórnin hér á landi er í molum. Það er fullt af fólki sem er að taka á sig alveg svakalegt högg, fyrirtæki líka. Þetta er að hafa gríðarleg áhrif inn í framtíðina. Við erum að búa til nýja húsnæðisbólu og lítið er verið að gera í ríkisstjórninni. Ég tek undir að það er gott að ræða þetta hérna í þingsal en mig langar þá að biðja þingheim allan að reyna þá jafnvel að dýpka umræðuna aðeins og velta fyrir sér: Hver er rót vandans? Af hverju er íslenska þjóðin aftur og aftur í þessari stöðu? Af hverju erum við aftur og aftur að reyna að endurtaka sömu tilraunina með ónýtan gjaldmiðil sem skilar okkur sömu niðurstöðu aftur og aftur með reglulegu millibili? Ég myndi fagna því mjög ef umræðan næði yfir á þessar lendur, hvenær svo sem hún verður.