umræða um efnahagsmál.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir og fagna því að það verði væntanlega breyting á dagskrá þingsins í næstu viku, það er tími til kominn. Þetta höfum við í Viðreisn einmitt bent á undanfarnar tólf stýrivaxtahækkanir. Sú þrettánda var í morgun, upp á 125 punkta, með tilheyrandi afleiðingum fyrir fjölskyldurnar og heimilin og litlu og meðalstóru fyrirtækin í landinu. En það er átakanlegt að sjá að það er ekkert lífsmark að finna við ríkisstjórnarborðið, ekkert frumkvæði að því að eiga þetta samtal hér og segja: Hvað er það sem við getum gert saman til þess að koma til móts við heimilin og fyrirtækin í landinu í því ástandi sem nú er? Ég vonast til þess, í þeirri umræðu sem við munum taka í næstu viku, um það ófremdarástand sem er í íslensku efnahagslífi, að ráðherrar ríkisstjórnarinnar og forystufólk mæti hér til þess að tala við okkur og eiga samtal um það hvernig við megum og eigum að gera betur.