Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

umræða um efnahagsmál.

[15:13]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Af því að talað var um að fleiri ráðherrar þyrftu að koma þá fyndist mér augljóst að það væri a.m.k. ráðherranefndin um efnahagsmál sem mætti hérna og svaraði spurningum þingmanna. Það er svona lágmarkstillaga, alla vega af minni hálfu, og því hvet ég forseta til að láta þá ráðherra vita.