Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 111. fundur, 24. maí 2023.
umræða um efnahagsmál.
Forseti. Ég tek undir með fyrri ræðumönnum, við þurfum aðgerðir núna því að afleiðingar af þessari stöðu sem hefur orðið og sem er að verða gætu orðið mjög alvarlegar. Ég tek undir beiðni um að hafa þingfund á morgun með umræðu um efnahagsmál hér á landi og við þurfum að taka það alvarlega að vernda fólkið í samfélaginu og hjálpað því í þeim áföllum sem dynja nú yfir heimilin.