umræða um efnahagsmál.
Virðulegi forseti. Það er fínt að ræða málin hérna á morgun en mig langar engu að síður að segja að tíminn fyrir umræður er liðinn, það þarf aðgerðir núna. Það þarf að gera eitthvað til að hjálpa heimilum sem eru bókstaflega komin á vonarvöl. Þetta var bara svona grimmilegt högg, enn eitt höggið, í þrettánda skiptið, sem kom frá Seðlabanka Íslands í morgun. Ríkisstjórn Íslands virðist algerlega vera búin að gefa þetta frá sér og gefa valdið til þessa fólks sem þar situr til þess að ráða þessu algerlega. Það hefur meira vald en allir kjörnir fulltrúar. Það gengur ekki upp og það er eitthvað sem þarf að ræða. En bara burt séð frá því þá verður að grípa til aðgerða núna og besta aðgerðin væri að hætta þessum vaxtahækkunum, minnka húsnæðiskostnaðinn hjá fólki vegna þess að aðgerðirnar gegn verðbólgunni eru miklu verri en verðbólgan sjálf. Ef fólk eyðir 500.000 kr. á mánuði, þá er 10% verðbólga 50.000 kr. aukning, Seðlabankinn er búinn að bæta 240.000 kr. við á 40 millj. kr. láni, plús þessum 50.000 kr.