Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

umræða um efnahagsmál.

[15:16]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Við sem höfum tekist á við krísur hingað og þangað um heiminn höfum lært að það þýðir ekkert að stinga hausnum í sandinn og athuga hvort stormurinn gangi ekki bara yfir. Það er neyðarástand í efnahagsmálum. Það er neyðarástand á heimilunum. Það þýðir ekkert að segja bara: Já, við erum búin að gera þetta, við erum búin að gera hitt. Það er ekki að virka. Við þurfum að ræða hér saman um hvað er hægt að gera sem hefur alvöruáhrif fyrir þá sem líða fyrir það hvernig ástandið er. Við hljótum að geta sest niður og hætt að tala bara um eitthvað sem er búið að gera og tala um hlutina eins og þeir eru og hvað við ætlum að gera vegna þess að annars skiljum við þetta land eftir eins og eftir einhvern fellibyl sem hefur farið hér yfir.