Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

umræða um efnahagsmál.

[15:17]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Hæstv. forseti. Hæstv. fjármálaráðherra hefur sagt að ríkisstjórnin sé að gera nóg til þess að vinna á verðbólgu. Hæstv. forsætisráðherra sagði svo hér í gær að það hefðu engin mistök verið gerð í hagstjórninni. En í dag ákvað Seðlabankinn að hækka stýrivexti um meira en 100 punkta vegna þess einmitt að verðbólguvæntingar hafa farið hækkandi síðan fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar kom fram, vegna þess að verðbólguþrýstingur verður meiri í ár og á næsta ári samkvæmt nýjustu spám en áður var gert ráð fyrir.

Forseti. Þarf einhver hér inni að efast um það að ríkisstjórnin hefur brugðist þegar kemur að því að sýna festu, þegar kemur að því að taka þær erfiðu ákvarðanir sem þarf að taka á tímum mikillar þenslu? Það er eitt að ræða málin og sem fyrr þakka ég hæstv. forseta fyrir að taka vel í þá beiðni. En ég vil líka brýna fyrir hæstv. forseta og brýna fyrir stjórnarmeirihlutanum að við nýtum nú þessar næstu þrjár vikur mjög vel til þess bæði að taka fast á þenslunni, ráðast í aðgerðir sem eru til þess fallnar að slá á verðbólguvæntingar og að verja heimilin fyrir verðbólgunni og vaxtahækkunum. Til þess eigum við tæki, til þess eigum við lausnir, (Forseti hringir.) það hafa komið lausnir hér fram frá mörgum flokkum, ágætar lausnir. Frumvörpin eru til, úrræðin eru til en nú þarf ríkisstjórnin að sýna lit.