Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Hverjar eru þarfir mannsins til að þrífast í samfélagi? Samkvæmt Maslow-píramídanum þurfa líkamlegar þarfir mannsins að vera uppfylltar. Þetta eru grunnþarfir mannsins, fæði, vatn, svefn, fatnaður, húsnæði, heilsa og samlíf. Þetta er grunnurinn, það sem mestu máli skiptir. Fæðuöryggi, heilsa og húsnæði skiptir líklega mestu máli hér. Á meðan veltist nútíminn um og kvartar yfir öllu öðru, karpar um punkta og strik. Þegar grunnurinn er kominn tekur næsta hæð við. Þar er þörf mannsins fyrir öryggi. Það þarf einfalda lagaumgjörð og löggæslu sem hjálpar okkur við að lifa án ótta við þjófnað, tilfinningalegan óstöðugleika, hryðjuverk og fleira ásamt jákvæðu öryggi, svo sem öryggi í heilbrigðiskerfinu og tækifæri til að öðlast og halda fjárhagslegum stöðugleika. Aftur erum við að gleyma okkur í þessum grunnþörfum og erum farin að einbeita okkur að verkefnum sem hafa ekki nokkra þýðingu fyrir grunnþarfir almennings. Ef samfélagið ræður ekki við grunnþarfir, hvað er þá verið að villast um í ímynduðum málefnum? Ofan á öryggi kemur svo þörf fyrir að tilheyra hópi fólks, nærsamfélagi og þaðan af stærri hópum, og að tengjast einhverjum með nánd, líkamlega, kynferðislega og tilfinningalega.
Ég er ekki ein um að velta því fyrir mér hvert samfélagið er komið. Í stað þess að við horfum inn á við, hvað við getum gert, er aukin krafa um að ýta öllum vandamálum og erfiðleikum yfir á ríkið. Ég held að það sé kominn tími til að vinda ofan af þeim spíral sem við höfum skapað, þar sem verið er að karpa um óraunveruleg vandamál, þar sem verið er að slást við að uppfylla staðla (Forseti hringir.) sem hver og einn hefur blómstrað út í sína eigin vitleysu og einbeita okkur að grunnþörfum mannsins.