Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

Störf þingsins.

[15:25]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F):

Virðulegi forseti. Það var á sumarmánuðum 2019 sem þáverandi bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hófu viðræður við innviðaráðherra, Sigurð Inga Jóhannsson, um að flýta framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar frá Hvassahrauni að mislægum gatnamótum við Krýsuvík. Þetta krafðist mikillar vinnu og m.a. góðs samstarfs við Vegagerðina, Carbfix og álverið í Straumsvík um skipulagsmál á svæðinu. Á sínum tíma voru áform uppi um stækkun álversins í Straumsvík og keypti álverið land undir þá fyrirhuguðu stækkun. Á því landi sem álverið keypti liggur núverandi vegstæði Reykjanesbrautar. Vegna þessa var vegstæði Reykjanesbrautar á aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar fært ofar og átti sá flutningur brautarinnar að eiga sér stað um leið og álverið þyrfti landið og lóðina til stækkunar. Áform álversins um stækkun voru hins vegar felld naumlega í vel þekktri íbúakosningu árið 2007 og varð því ekkert af tilfærslu brautarinnar.

Skýrsla Vegagerðarinnar og Mannvits sýndi að hagkvæmast væri að breikka Reykjanesbrautina í núverandi vegstæði í stað þess að færa hana líkt og aðalskipulagið gerði ráð fyrir. Góð og lausnamiðuð samtöl við innviðaráðherra, fulltrúa Vegagerðarinnar og álversins í Straumsvík urðu svo til þess að þessari mikilvægu framkvæmd var flýtt og aðalskipulagi bæjarins breytt samhliða. Fyrir alla þessa vinnu og skilning ber að þakka og þar set ég undir alla þá aðila sem að þessum málum komu með einum eða öðrum hætti. Þann 17. maí síðastliðinn skrifuðu Vegagerðin og ÍAV undir verksamning um þessa mikilvægu framkvæmd. ÍAV bauð tæpa 4 milljarða í verkið, sem er talsvert undir þeirri kostnaðaráætlun sem lagt var upp með. Undirbúningur hefst strax og framkvæmdir munu hefjast í sumar. Umferðaröryggi er málefni sem snertir okkur öll og nú hillir undir að kláraðar verði framkvæmdir við tvo slysamestu vegi landsins, þ.e. Suðurlandsveg og svo Reykjanesbraut. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir okkur Hafnfirðinga og landsmenn alla.