Störf þingsins.
Forseti. Menntun er ein af grunnstoðum samfélagsins og staða íslenskra barna og ungmenna í alþjóðlegu samhengi er ekki góð samkvæmt nýjustu upplýsingum. Nýlegur fréttaflutningur af börnum og ungmennum í skólum á Íslandi veldur áhyggjum. Það hefur komið í ljós að 16,5% ungmenna á aldrinum 18–24 ára hættu í námi á árinu 2022. Þá eru niðurstöður um hvernig íslenskum börnum gengur í grunnskóla í alþjóðlegu samhengi ekki íslensku skólakerfi í hag.
Í skýrslu um félagslega og efnahagslega stöðu og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum kemur fram að menntun foreldra og heildartekjur fjölskyldunnar skipti miklu máli. Við okkur blasa stýrivaxtahækkanir og minnkandi kaupmáttur sem gerir það að verkum að fleiri fjölskyldur og fleiri ungmenni hafa minna á milli handanna. Það má vænta þess að þetta leiði til aukins brotthvarfs því að ungmenni flosna upp úr framhaldsskólum. Verðbólga og vaxtahækkanir snúast ekki einungis um nútíðina heldur líka framtíðina.
Það er til mikils að vinna að bæta úr þessari stöðu, ef við hugsum þetta upp á nýtt og út fyrir kassann. Hvernig getum við breytt núverandi ástandi til þess að í framtíðinni séu hér einstaklingar sem geta og vilja sækja sér menntun í framhaldsskólum og háskólum? Við þurfum að taka því alvarlega þegar börn hér á landi eru að dragast aftur úr jafnöldrum sínum og við þurfum að breyta og bæta. Við þurfum að taka mark á þessum niðurstöðum því að það skiptir öllu máli að mennta framtíð landsins og gera það vel.