Störf þingsins.
Forseti. Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur fram að gerður hafi verið rammasamningur við sveitarfélögin um aðgerðaáætlun um aukið framboð íbúða í fyrrasumar og að mat Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sé að kostnaðurinn við það sé 44 milljarðar yfir tímabilið sem fjármálaáætlun nær yfir, í stofnframlög, og lánveitingar 188 milljarðar. Þetta þarf til þess að ná því markmiði að byggja 35.000 íbúðir fram til ársins 2032. Í fjármálaáætlun er hins vegar bara fjármögnun upp á 18,7 milljarða og lán upp á 20 milljarða, langt frá þeim markmiðum sem samningurinn, sem ríkið sjálft gerði, kveður á um. Það er einhvern veginn þannig að það þarf svona mörg hús til að ná að byggja samkvæmt húsnæðisþörf. Ríkið fer og gerir samninga við sveitarfélögin um að byggja svona mörg hús. Síðan þegar fjármálaáætlunin kemur, þá bara: Við ætlum bara að fjármagna þetta mikið. Það þýðir að það verður bara byggt þetta mikið. Það er það sem það þýðir. Ef, fyrir eitthvert kraftaverk, eins mikið verður byggt í alvörunni og samningar voru gerðir um að byggja, hvað þýðir það? Það þýðir að afkoma ríkissjóðs samkvæmt fjármálaáætlun er röng. Þar vantar þó nokkuð marga milljarða upp á. Ríkið yrði þá í enn meiri mínus en það er núna, merkilegt nokk, en það þarf samt að byggja svona margar íbúðir, það er óhjákvæmilegt verk, en það er ekki verið að fjármagna það.
Þetta er tvískinnungurinn í málflutningi ríkisstjórnarinnar um húsnæðismál. Þau segjast vera að leysa húsnæðisvandann með svona mörgum húsum en fjármagna hann síðan ekki, segja að það sé óraunhæft að byggja svona mörg hús. (Forseti hringir.) Þau ætla bara að byggja þetta mikið af húsum í staðinn fyrir svona mikið af húsum. (Forseti hringir.) Það er óásættanlegt að við þurfum að glíma við það hérna, Alþingi Íslendinga, að ríkisstjórnin komi svona fram við okkur, geri samninga um eitt en uppfylli þá ekki þegar á hólminn er komið.