Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Stýrivextir hækkuðu um 1,25 prósentustig í morgun og hefur það líklega ekki farið fram hjá nokkrum manni. Meginvextir Seðlabankans eru því 8,75% samkvæmt yfirlýsingu peningastefnunefndar. Hækkunin er að sjálfsögðu ákveðin vonbrigði enda með hraustlegra móti. Það er ljóst að fjöldi fólks mun finna fyrir þessari hækkun enda óhjákvæmilegt annað en að hækkandi verð á vörum og varningi sem við þurfum til daglegs lífs hafi áhrif á heimilisbókhaldið, svo að ekki sé minnst á húsnæðisliðinn. Eftir sem áður eru það þeir hópar sem hafa minnst á milli handanna sem verðbólgan hefur mest áhrif á og það verður áframhaldandi verkefni okkar að verja þá hópa í gegnum þetta tímabil líkt og ríkisstjórnin hefur gert síðustu mánuði.
Það leikur enginn vafi á því að þetta er eitt stærsta verkefni stjórnvalda þessi misserin. Líkt og hæstv. forsætisráðherra rifjaði upp fyrir þingheimi hér í ræðustóli í gær þá byrjaði lífið ekki í gær. Um áramótin voru skerðingarmörk vaxtabóta fyrir þetta ár hækkuð um 50%. Húsnæðisstuðningur hefur hækkað í tvígang á síðustu 12 mánuðum. Síðastliðið sumar voru húsnæðisbætur til leigjenda hækkaðar um 10% og í desember um tæp 14% til viðbótar. Þá fengu barnafjölskyldur viðbótarbarnabætur og boðaðar breytingar á barnabótakerfinu munu leiða til almennrar hækkunar barnabóta á þessu ári.
Þá eru boðaðar aðgerðir í fjármálaáætlun, bæði á tekju- og gjaldahlið ríkissjóðs, sem miða að því að kæla hagkerfið, auka aðhald á neytendamarkaði og fleira. Sú staða sem uppi er hér á landi, þar sem fer saman verðbólga, hagvöxtur og hátt atvinnustig, er ekki það sem við almennt þekkjum til af verðbólguáhrifum. Umsvifin í hagkerfinu eru enn umtalsverð og atvinnuhorfur með bjartasta móti. Ekki virðist hafa dregið úr eftirspurn að neinu ráði í ferðaþjónustu og óhætt að segja að sú stoð atvinnulífsins sé komin aftur á fullt skrið eftir hremmingar síðustu ára. Á þessu tímabili mun verðbólgan lækka. Hér eftir sem hingað til er það þó okkar verkefni og hlutverk að verja heimilin í landinu hvað best við getum og þau sem mest finna fyrir áhrifum verðbólgunnar. Þar verðum við að láta til okkar taka.