Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

Störf þingsins.

[15:41]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Forseti. Stóra spurningin eftir 1,25 prósentustiga stýrivaxtahækkun er þessi: Hvers vegna þarf margfalt hærri vexti á Íslandi til að berjast gegn svipaðri verðbólgu og annars staðar? Svarið er: Gjaldmiðillinn okkar. Eitt stærsta velferðarmálið er að reyna að komast út úr þessum vítahring og frá því að greiða þennan krónuskatt, að stjórnmálin hafi þrek til að gera meira en að bregðast alltaf bara við og fari að horfa fram á veginn. Staðreyndin er nefnilega sú að það er nákvæmlega ekkert sem mælir með krónunni fyrir venjulegt fólk á Íslandi. Á þessu ári munu fleiri bætast í hóp þeirra sem taka núna á sig höggið af háum vöxtum þegar 4.500 heimili verða ekki lengur í skjóli fastra vaxta. Og annar hópur á næsta ári.

Aldrei hafa fleiri keypt fyrstu íbúð en á árunum 2020 og 2021. Stjórnvöld geta tekið þátt í því að kæla verðbólguna núna og verða að gera það. Við afgreiðslu fjárlaga lagði Viðreisn einmitt fram tillögur í þá veruna. Þá lögðum við ein fram hagræðingartillögur og að farið yrði í það að greiða niður skuldir. Við lögðum fram tillögur um tekjuöflun með hækkun veiðigjalda og kolefnisskatta. Við lögðum fram tillögur um að verja ungt fólk og barnafjölskyldur í gegnum vaxtabóta- og húsnæðisbótakerfið og með greiðslu barnabóta. Verðbólgan er og verður alltaf þyngst fyrir þau sem minnst höfðu fyrir. Þess vegna er það svo ömurlegur dómur yfir stjórnvöldum að gera ekki neitt. Þegar ríkisstjórnin gerir ekkert þá halda vextir áfram að hækka, svo einfalt er það. Nú bíta vaxtahækkanir ungt fólk og fjölskyldufólk mjög fast, sama fólkið og keypti sína fyrstu íbúð á meðan á því dundu auglýsingar um lágvaxtalandið Ísland. Ríkisstjórnin þarf að vakna. (Forseti hringir.) Hún þarf að taka þátt í því að kæla verðbólgu. En síðan verðum við að horfa til framtíðar (Forseti hringir.) svo að sýningarnar í íslenska vaxtasirkusnum haldi ekki bara áfram, því að þetta þarf ekki að vera svona.