Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

Störf þingsins.

[15:44]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Þrettánda stýrivaxtahækkun Seðlabankans var tilkynnt í morgun, að þessu sinni upp á 1,25 prósentustig. Þetta gerist á sama tíma og ríkisstjórnin skilar auðu í efnahagsmálum. Í gær ræddu hér formaður Samfylkingar og formaður Viðreisnar annars vegar við hæstv. forsætisráðherra og hins vegar hæstv. fjármálaráðherra um útlitið og aðgerðir í efnahagsmálum. Tveir leiðtogar ríkisstjórnarinnar sögðu bókstaflega engra tíðinda að vænta. Svar þeirra við þessum stórbruna í efnahagskerfinu sem leiðir um allt samfélagið og bítur fastast þau tekjulægstu er að þylja upp einhverjar aðgerðir úr fortíðinni, jafnvel frá síðasta kjörtímabili.

Herra forseti. Við þurfum aðgerðir núna. Við þurfum ekki upptalningu á einhverju sem er augljóslega ekki að virka. Aðgerðir núna. Það sem keyrir brunann er skortur á húsnæði og þar er ríkisstjórnin ekki að gera neitt, ekkert fjármagn til uppbyggingar almennra íbúða og nýundirritaður samningur ríkisins við Reykjavíkurborg virðist vera fjármagnaður með gúmmítékka. Efnahagsstjórnun snýst ekki síst um væntingar. Hið fullkomna afskipta- og afstöðuleysi ríkisstjórnarinnar slekkur þannig vonina í hjörtum landsmanna um að viðbragða sé að vænta. Við það að ríkisstjórnin komi ekki með neinar tillögur og enga framtíðarsýn þá dofna væntingarnar um betri tíð sem svo hefur áhrif á efnahagsástandið því ef það er ekkert plan þá birtist það í hærri verðbólgu og hærri stýrivöxtum sem er ekki í neinum tengslum við það sem er að gerast á Norðurlöndunum, ekki neinum, enda er þar stöðugur gjaldmiðill.

Herra forseti. Ég held svei mér þá að þessi ríkisstjórn þurfi ekki sumarfrí. Hún þarf að komast í hvíldarinnlögn og hleypa að flokkum sem þora að takast á við ástandið og hafa þar að auki tillögur í farteskinu. Þjóðin á betra skilið en það sem nú er.