Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Eðlilega hafa margir rætt hér stýrivaxtahækkun Seðlabankans og ástandið í efnahagsmálum. Ég tel fulla ástæðu til að ræða ástandið í efnahagsmálum og geri það bæði hér í þingsal þegar það á við, en ekki síður og allra helst í fjárlaganefnd þar sem við fjöllum nú um fjármálaáætlun til næstu ára.
Virðulegur forseti. Mig langaði að nota þetta tækifæri til að segja þingheimi frá því að í lok síðustu viku sótti ég ráðstefnu Eystrasaltsþingsins sem fulltrúi Norðurlandaráðs, ásamt hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur og Hönnu Katrínu Friðriksson. Þar var umræðuefnið, eins og alltaf á alþjóðavettvangi, stríðið í Úkraínu og ástandið í þeim löndum sem eiga landamæri að Rússlandi. Þetta þing var sérstaklega sett til að fjalla um samstöðu og samstarf í austri, mikilvægi þess að þau lönd sem eiga landamæri að Rússlandi séu í virku og góðu samstarfi. Ég notaði að sjálfsögðu tækifærið til að koma inn á leiðtogafund Evrópuráðsins, sem haldinn var hér í Reykjavík tveimur dögum áður, og mikilvægi tjónaskrárinnar sem þar náðist samkomulag um. Því miður hafa ekki öll löndin enn skrifað undir þessa tjónaskrá. Þau lönd sem ekki hafa gert það enn eru líka þau lönd sem voru, alla vega að hluta til, boðuð á þetta þing og mættu illa eða lítið.
Virðulegur forseti. Ég hef sagt það áður hér í ræðustól að ég held að það sé mjög mikilvægt að við hér á Íslandi og á Norðurlöndum vinnum þétt með vinum okkar í Eystrasaltslöndunum sem eru alveg ofboðslega skelfdir, eðli málsins samkvæmt, gagnvart framgangi Rússa. Þau þekkja af eigin raun hvernig það er að vera undir Sovétríkjunum gömlu og þau vita að þeim stafar veruleg ógn af ástandinu.
Við eigum að standa með Úkraínu en við eigum líka áfram að sýna í verki hversu góðir og öflugir vinir þessara minni ríkja í Eystrasaltinu við erum.