Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég stekk hér inn með engum fyrirvara þar sem það féllu út frummælendur. Ég fagna því að hér verði gefinn kostur á einhvers konar umræðu, þankatanki, í næstu viku um það sem flestir þingmenn virðast sammála um að eru grafalvarleg vandamál tengd efnahagsmálunum. Ég myndi hvetja til þess að við, í öllum flokkum, leituðum okkur þekkingar og jafnvel ráðgjafar utan frá sem innan, vegna þess að ég hef ekki heyrt neina patentlausn á þessu flókna vandamáli, þessu flókna samspili örmyntarinnar í samanburði við aðrar myntir og efnahagsmálin almennt. Eigum við ekki bara að viðurkenna að vor unga þjóð, vor unga sjálfstæða lýðveldisþjóð, á sér nokkuð flekkótta fjármálasögu. Við erum hér nokkur inni sem munum vel 1983 og 120% verðbólguna. Það var nú ekki beint til að státa sig af. Efnahagshrunið 2008, þótt það væri ekki eingöngu innlent fyrirbrigði, er annað dæmi um að við höfum ekki haldið sérlega vel eða farsællega á spöðunum. Staðan eins og hún er í dag segir okkur að það er meinsemd hér sem við höfum ekki náð tökum á. Ef við horfum bara til þeirra sem hafa hlotið bata hér inni með atfylgi SÁÁ eða AA-hugmyndafræðinnar, 12 spora kerfisins, væri þá ekki best að játa í auðmýkt að við þurfum aðstoð og ráðgjafa? Við fengum Buchheit hér í hruninu og ég held að það séu til fróðari og betri menn, sérfræðingar í efnahagsmálum, sem gætu gefið okkur ráð. (Forseti hringir.) Frekar en að vera að munnhöggvast hér hvert við annað þá skulum við viðurkenna að ekkert okkar er með patentlausnir. Við þurfum að ígrunda nokkra ólíka valkosti og helst enga afarkosti, Þorbjörg mín háttvirt og þið öll hin.